Árshátíð Íslendingafélagsins í Stokkhólmi
Góðir hálsar. Vinir okkar í Íslendingafélaginu munu halda árshátíð sína þann 20. mars og hvetjum við skemmtanaglaða námsmenn til að mæta.
* Hvenær: laugardaginn 20. mars kl. 18* Hvar: Fellows, Brunnsgatan 6, Östermalm
* Verð: 450 kr fyrir félaga og námsmenn, 600 kr. fyrir aðra.
* Veislustjóri: Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, leikkona, grínari og
uppistandari með meiru
* Fram munu koma: Friðrik Ómar júróvisjón sjarmör og Halla Vilhjálmsdóttir,
söng- og leikkona. Eftir borðhald mun hinn frábæri DJ Aronsky sjá um að
þeyta skífum fram til kl. 01.30.
* Í boði: Fordrykkur og glæsilegt hlaðborð undir karabískum áhrifum
* Barinn býður upp á allt það helsta og heitasta á markaðnum
Miðafjöldi er takmarkaður, tryggðu þér miða með því að leggja inn á reikning
Íslendingafélagsins: Plusgiro 40 39 35-0. Gefðu upp nafn og fjölda miða. Að
sjálfsögðu má greiða félagsgjöldin samtímis: 150 kr. eða 250kr. fyrir
fjölskyldu.
Húsið er lokað meðan á borðhaldi stendur, frá 19:00 – 22:00, og eftir það
kostar miðinn 250 kr.
Bæta við athugasemd:
Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir við fréttirÝttu hér til að skrá þig inn